jæja ætli ég hendi ekki inn nokkrum orðum hérna, þó að ég nenni því engan veginn... en allavega svona smá fyrir Siggu og Elínu sem að búa fyrir sunnan og heimta blogg...
skil samt ekki af hverju það dettur allt úr hausnum á manni þegar maður ætlar að fara að setja hérna inná... bara eins og ekkert hafi gerst!!
ég er að búa mér til my space síðu sem að gengur mjöööööög hægt.... hehe eins og sumir vita þá er ég alls enginn tölvusnillingur, væri reyndar alveg til í að vera það
en mér finnst þetta vera ansi flókið. hún verður allavega einhvern tímann tilbúin og þá læt ég ykkur vita.
styttist í spán, hlakka mikið til
styttist líka þessi biðtími í að láta gera við skemmdirnar á bílnum mínum, reyndar var það alveg tveggja mánaða biðlisti
úff það er svo langt síðan ég skrifaði hérna síðast, veit ekkert hvað ég á að segja... allavega var þetta vikusumarfríið mitt hrikalega fljótt að líða, bara eins og 3 dagar... fór þá á ættarmót sem að var algjör snilld, ótrúlega gaman á því... svo kom versló sem að var ekkert sérstök, hitti þá Fjólu og var með henni,bara rólegar fórum á brekkusönginn saman og svo rúntuðum við bara, ég var auðvitað að vinna um versló eins og alltaf, var að pæla að prófa að vinna ekkert þessa helgi á næsta ári, bara til að slappa af, ekki að fara á útihátíð, heldur bara að vera hérna í bænum og hafa það gott
sjáum svo bara til hvernig það fer, eftir því hvar ég verð að vinna og solleis... en jamm fór reyndar í eitt partý með ellu gellu til Ásdísar, ég var komin í geggjað stuð eftir að hafa borðað heilan poka af candyfloss dæmi og var í algjöru sykursjokki, Andri fékk bara smá hjá mér, en án gríns þá held ég að ég hafi verið mesta lagi 10 mín með hann á meðan hann var að lána mér áfengið sitt og dúnnu, en þau gáfu mér það bara síðan... en í partýinu þá bara datt ég úr öllu stuði og elín varð bara full á örskammri stundu, meðan ég var föst í eldhúsinu vegna þess að flaska brotnaði og það þurfti að þrífa vel eftir það... bla, bla... allavega var elín orðin vel í því og ég ekki og ég þekkti engan annan þarna og ákvað þá bara að hætta að drekka og fara heim með taxa þegar þau fóru í sjallann, sá eftir því að hafa byrjað að drekka þvi við biðum svo lengi eftir taxa, og ég starði bara á bílinn minn en þorði auðvitað ekki að keyra heim þó svo að ég fyndi ekki einu sinni á mér... skildi bílinn eftir þarna í keilusíðu og pabbi labbaði og sótti hann daginn eftir og kom með hann til mín í vinnuna... geggjað góður
var ánægð daginn eftir að hafa ekki djammað, því að mér leið hálfilla samt, var með hausverk og illtí mallanum og þreytt, svo að ég djammaði ekki neitt og á helling af áfengi þar sem að mamma keypti líka handa mér áfengi og hvað á ég að gera við þetta allt... fer nú ekki svo oft á djammið, held ég sé orðin svona gömul!!!
ég og elín erum búnar að bralla mikið núna undanfarið og skruppum í mjög skemmtilega búðarferð rétt áður en hún fór, það var alveg svaka fjör
svo fórum við stelpurnar ( ég, eva maría og elín út að borða saman á strikið og á amor og það var mjög gaman að hittast svona, góður matur og gott kvöld
veit ekki hvað ég á að bulla meira hérna, get skrifað helling en held að enginn nenni að lesa það... er hálfveik ennþá eftir að hann elskulegi bróðir minn smitaði mig af einhverri pesti, auðvitað er ég svo óheppin að ég fæ allar svona pestar strax... mjög leiðinlegt, var einmitt að afgreiða á dominos áðan að reyna að kalla upp og þegar ég bað fók um símanúmer var ég eins og einhver hálfviti þarna, þar sem að það er mikill hávaði bakvið mann sem að fólk virðist ekki heyra sem er að sækja og fyrir utan það þá er ég með svo miklar hellur og heyri voða lítið núna með öðru eyranu, verð alltaf veik í eyrunum þegar ég veikist... en jæja, verð allavega voða pirruð þessa viku út af vinnunni, megadæmið skilijiði... ég er bara með svo mikið ógeð á þessu það verður svo crazy að gera... þannig að ekki tala við mig í þessari viku, bíðið frekar... ekki nema þið vitið hvað kemur mér í gott skap og þannig, þá megið þið tala við mig...
en ég vil fá kvitt hérna!!!! annars nenni ég þessu ekki !!!


og hrönn ef þú skoðar hérna þá er ég að reyna að senda þér póst með myndum en netsambandið er bara svo slæmt að það hefur ekki getað sent þér... þetta er búið að vera alveg óþolandi þetta net, skil ekki af hverju það er svona, samt þráðlaust.... er búið að vera svona í meira enn ár!!!
held samt að enginn nenni að lesa þetta bull, en til hamingju allavega ef þér tókst að klára það áður en þú sofnaðir eða ákvaðst að X-a á síðuna